Sunnan 3-10 m/s og dálitlar skúrir, en bjart um landið norðaustanvert.
Suðaustan 5-13 og rigning með köflum á morgun, en yfirleitt þurrt norðaustanlands fram undir kvöld.
Hiti 3 til 10 stig að deginum.
Spá gerð 02.05.2024 03:34
Textaspáin gildir ef munur er á textaspá og sjálfvirkum spám!
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Óyfirfarnar frumniðurstöður
Stærð | Tími | Gæði | Staður |
---|---|---|---|
2,5 | 30. apr. 23:11:00 | Yfirfarinn | 84,5 km NNA af Kolbeinsey |
2,4 | 30. apr. 07:26:14 | Yfirfarinn | 55,1 km ASA af Kolbeinsey |
1,8 | 01. maí 04:10:20 | Yfirfarinn | 4,7 km ANA af Goðabungu |
Eldgos á Sundhnúksgígaröðinni
Eldgosið við Sundhnúk heldur áfram og líkt og síðan 5. apríl er einn gígur, skammt austan við Sundhnúk, virkur. Hraun rennur stutta vegalend til suðurs frá gígnum í opinni hrauná en lengra í lokuðum rásum. Hluti hraunbreiðunnar nærri varnargörðum austan Grindavíkur heldur áfram að þykkna hægt og rólega og hefur náð að hluta til yfir varnargarð L12. Áfram er jarðskjálftavirkni á svæðinu í lágmarki.
Sjá nánar í frétt á forsíðu
Upplýsingar um gasdreifingarspá má
sjá hér
Skrifað af vakthafandi jarðvísindamanni 01. maí 20:12
Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það. Meira
Vatnsfall | Staður | Rennsli | Vatnshiti |
---|
Vegna bilunar höfum við þurft að slökkva á þjónustunni sem birtir gögn frá vatnamælistöðvum á kortinu. Hægt er að nota Rauntímavöktunarkerfi í staðinn
Skrifað af vakthafandi sérfræðingi 01. maí 08:07
Spáin gildir fyrir stór landsvæði og þarf því ekki að vera lýsandi fyrir byggð.
Landshluti | fim. 02. maí | fös. 03. maí | lau. 04. maí |
---|---|---|---|
Suðvesturhornið
|
|||
Norðanverðir Vestfirðir
|
|||
Tröllaskagi utanverður
|
|||
Eyjafjörður innanverður (tilraunaverkefni)
|
|||
Austfirðir
|
Uppfært 30. apríl kl. 14:55
Eldgosið við Sundhnúk heldur áfram og rennur hraun til suðurs frá gígnum líkt og undanfarið. Suðurhluti hraunbreiðunnar heldur áfram að þykkna þangað sem hraun rennur í lokuðum rásum. Á laugardaginn, 27. apríl, fór lítil hrauntunga yfir varnargarð austan Grindavíkur. Ekki hefur meira hraun farið yfir varnargarðinn síðan þá.
Enn mælist landris við Svartsengi en þó eru vísbendingar um að hægt hafi á því síðustu daga. Á sama tíma hefur gosórói sýnt smávægilega aukningu og smáskjálftavirkni aukist tímabundið á Sundhnúksgígaröðinni.
Lesa meira
Íslenski veturinn, frá fyrsta vetrardegi 28. október 2023 til og með 24. apríl 2024 var kaldur. Meðalhiti á landsvísu var -0,2 stig sem er, -1,2 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Íslenski veturinn hefur ekki verið eins kaldur síðan veturinn 1998-99. Að tiltölu var kaldara á norðanverðu landinu. En veður var almennt gott. Það var hægviðrasamt og illviðri tiltölulega fátíð. Veturinn var óvenjulega þurr og sólríkur suðvestanlands og er veturinn sá sólríkasti í Reykjavík frá upphafi mælinga.
Lesa meiraEvrópa er ekki undanskilin þegar kemur að afleiðingum loftslagsbreytinga. Hlýnun mælist hröðust í Evrópu, en hiti álfunnar hækkar tvöfalt á við hnattræna hlýnun. Árið 2023 mældist hiti í Evrópu 1,0 °C hærri en meðalhiti viðmiðunartímabilsins 1991-2020 og 2,6 °C hærri en fyrir iðnbyltingu. Ársmeðalhiti var yfir meðallagi í nær allri álfunni árið 2023, ef frá eru talin Skandinavía, Ísland og suðausturhluti Grænlands.
Lesa meiraÍ dag er
liðinn einn mánuður frá upphafi eldgossins sem nú er í gangi á
Sundhnúksgígaröðinni. Eldgosið, sem hófst að kvöldi 16. mars, er það fjórða frá
því að kvikusöfnun hófst undir Svartsengi í lok október 2023. Eldgosið
nú hefur staðið lengst allra eldgosanna á Sundhnúksgígaröðinni í þessari hrinu
eldgosa og næstlengst þeirra gosa sem hafa orðið á Reykjanesskaga síðan 2021. Einungis
fyrsta eldgosið í Fagradalsfjalli sem hófst í mars 2021 er lengra, en það stóð
yfir í um 6 mánuði.
Í gær varð skjálftahrina í norðvesturhluta Öskju og mældust tæplega 30 skjálftar frá kl. 8 um morguninn til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 3,5 að stærð og varð á um 5 km dýpi. Einnig mældust þrír skjálftar frá 2,0 til 2,5 að stærð, en aðrir skjálftar voru minni. Jarðskjálftavirkni hefur lítið breyst á milli mánaða og verið nokkuð stöðug undanfarið þar til í gær. Síðast mældust skjálftar yfir 3 að stærð í janúar 2022 og október 2021.
Lesa meiraFöstudagskvöldið 27. júlí 2018 rétt um sólarlag mátti sjá myndarlegan regnboga á Suðurlandi, meðal annars í Grímsnesi.
Svo regnbogi sjáist þarf regn að falla í einhverri fjarlægð frá áhorfanda auk þess sem það þarf að vera heiðskírt fyrir ofan og aftan áhorfandann og sólskin skíni bak hans. Regnbogi birtist alltaf andstæðis sólu og miðja hans er í mótsólarpunkti (miðdepli), sem er á sjóndeildarhringi við sólarupprás og sólarlag en annars fyrir neðan hann. Þess vegna er regnboginn því hærri sem sólinn er lægra á lofti.
Lesa meira